ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hann fór yfir ýmsa hluti, þar á meðal þetta meinta ákvörðunarvald ACER. Ég er búinn að kynna mér það mál nokkuð vel, tel ég, og hlusta á allar gagnrýnisraddir og allar viðvaranir. Ég hef hlustað á þær með opnum huga og reynt að reiða mig sem minnst á samtöl við aðra sem aðhyllast málið heldur vil ég frekar fara í upprunalegu gögnin og skoða pakkann sjálfan, skjölin sjálf. Ég fæ ekki betur séð en að hlutverk stofnunarinnar, ACER, sé skilgreint í 7.–9. gr. í reglugerð nr. 713/2009, sem er umdeild, sem mér skilst einnig að varði téða fyrirvara, þ.e. að lagalegu fyrirvararnir sem við gerum segi sem svo: Þessi ákvæði taka ekki gildi fyrr en kominn er sæstrengur sem Ísland, nánar tiltekið Alþingi, ákveður sjálft, hvort verði lagður eða ekki.
Það sem ég velti fyrir mér er að jafnvel þótt EES teldi þessa fyrirvara bara eitthvert djók, hvað er í þessum greinum sem hv. þingmaður myndi hafa áhyggjur af að myndi hafa nokkur áhrif hér á Íslandi ef ekki væri þegar sæstrengur til staðar? Því hlýtur að liggja fyrir við lestur greinanna að ACER og EES fá ekki ákvörðunarvald um hvort lagður verði sæstrengur og reyndar ekki heldur ákvörðunarvald um hvaða reglur skuli gilda hér ef hann yrði lagður — nema ef ágreiningur yrði milli Orkustofnunar, hinnar íslensku stofnunar, og sambærilegrar stofnunar í hinu ríkinu, væntanlega þá Bretlandi. Eftir sex mánaða óleysanlegan hnút þar á milli, myndi ACER stíga inn í ESB-landið en EES gagnvart EES-löndunum.
Ég fæ ekki alveg séð hvað það er sem hv. þingmaður óttast við þessa fyrirvara eða að þeir haldi ekki. Ég fæ ekki betur séð en að þeir snúist (Forseti hringir.) um það að við setjum hér lög í samræmi við íslenska stjórnarskrá, ekki það að (Forseti hringir.) EES þurfi eitthvað að trúa á þessa fyrirvara. (Forseti hringir.) Það er okkar að meta það. Þetta snýst um samræmi við stjórnarskrá, snýst um hvað íslenskum dómstólum finnst. Eða það er minn skilningur.