149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:08]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er á móti því að leggja sæstreng vegna þess að ég tel það ekki samrýmast íslenskum hagsmunum í víðum skilningi. Ég átta mig hins vegar ekki á hvað yrði verra ef við myndum leggja sæstreng, þvert á minn vilja, og ef orkupakkinn væri innleiddur á Íslandi. Ég veit ekki hvað það er við ACER eða þær reglur sem okkur bæri að setja — ekki ACER, ACER myndi ekki setja reglurnar, Orkustofnun myndi setja reglurnar samkvæmt 8. gr. reglugerðar nr. 713/2009. Ég sé ekki hvað er verra.

Markmiðið er neytendavernd, gagnsæi, samkeppni. Það eru góð gildi og ég myndi vilja hafa meira af eftirliti með slíku ef til kæmi sæstrengur, ef við færum þá leið, sem ég teldi ranga. Ég veit ekki um neitt sem væri eitthvað betra við að hafa sæstreng án þriðja orkupakkans en að hafa sæstreng með þriðja orkupakkanum. Ekkert einasta atriði, ég hef aldrei heyrt neitt slíkt.

Mér finnst talað um markmiðið með þessari reglugerð eins og þau séu eitthvað ægilegt. Þau snúast um neytendavernd, gagnsæi og eftirlit með samkeppni. Þetta eru jákvæð gildi.

En ég árétta það bara og vil leiðrétta hv. þingmann: Það verður ekki ACER eða EES sem setur reglurnar. (Forseti hringir.) Okkur ber að setja reglurnar, við höfum ekki bara leyfi til þess heldur ber okkur beinlínis skylda til að setja þær reglur sjálf. (Forseti hringir.) Það er einungis ef ágreiningur er á milli okkar og viðskiptalandsins sem (Forseti hringir.) ACER mundi stíga inn í og EES eftir margra mánaða karp og ef ekki næðist saman milli þeirra landa.

(Forseti (BN): Forseti vill minna hv. þingmenn á að virða tímamörk.)