149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:10]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni. Auðvitað er það ánægjulegt og gott þegar samkeppni leiðir af sér lægra verð og betri þjónustu. En höfum við endilega séð það gerast á litla raforkumarkaðinum á Íslandi? spyr ég. Nú höfum við séð það þróast með þeim hætti. Ég er ekki endilega viss. En það sem ég sagði áðan í ræðu minni og ástæðan fyrir því að ég hef litla trú að þetta sé til hagsbóta fyrir Ísland er fyrst og fremst að með því að við tökum það skref sem við erum að taka núna með því að innleiða hugmyndafræðina og markmiðin er ekki bara verið að innleiða neytendavernd og markmið fyrir neytendavernd. Við erum líka að innleiða hugmyndafræði og markmið um stóran, sameiginlegan evrópskan markað þar sem eftirlitsstofnanir munu hafa áhrif — ég ætla ekki nota sterkari orð en það; hafa áhrif — á hvernig verðlagning mun fara fram, hvernig dreifa á vörunni, hvernig hún verður nýtt og annað. (Forseti hringir.)

Mér dettur ekki í hug að segja að Evrópusambandið muni ráða hér yfir jarðhitanum, en í gegnum alþjóðastofnanir sínar mun það geta haft áhrif á hvernig við ráðstöfum honum, haldi þetta áfram með þessum hætti.