149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:11]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni fyrir ræðu hans. Gott að fá að eiga orðastað við hann þar sem ég veit að hv. þingmaður þekkir þetta mál býsna vel, enda með mun lengri þingreynslu en ég og hefur jafnframt gegnt ráðherraembætti.

Mig langar fyrst að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að hann og sú ríkisstjórn sem hann starfaði í á árunum 2013–2016 hafi gert einhver mistök í þessu máli. Ástæðan fyrir því að ég spyr er að þetta mál er búið að vera til umfjöllunar í íslensku stjórnkerfi frá árinu 2010, fyrst og fremst í utanríkisráðuneytinu en jafnframt í fagráðuneytinu svo og í markvissum samskiptum við þingið og fjölda þingnefnda.

Mig langar einnig að spyrja hv. þingmann að því hvort hann geti bent á eitthvert atriði í þriðja orkupakkanum sem ógni með einhverjum hætti öryggi eða sjálfstæði Íslands. Mér fannst hv. þingmaður ræða meira um þetta á almennum nótum eins og þetta væri eitt skref í viðbót, en er eitthvað raunverulega í þriðja orkupakkanum sem hv. þingmaður óttast að muni breyta stöðunni umtalsvert frá því sem er í dag?

Ég held líka, virðulegur forseti, að ástæða sé til að það komi hér fram vegna þeirra fyrirvara sem um ræðir, lagalegu fyrirvara sem innleiddir verða með reglugerð, að atvinnuveganefnd hefur nú fengið drög að þeirri reglugerð til sín til umfjöllunar og jafnframt höfum við í utanríkismálanefnd fengið hana senda. Þar eru fyrirvararnir orðaðar með nákvæmlega sama hætti og er í greinargerðinni með þingsályktunartillögunni sem við fjöllum hér um, sem ég hefði í einfeldni minni haldið að væri bara mjög skýr og kvæði mjög skýrt á um það hver fyrirvari þessi er.