ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það verður að viðurkennast að það kemur eins og þruma úr heiðskíru lofti að íslensk stjórnvöld hafi barist fyrir því eða neitað að taka upp þessa gerð eða innleiða pakkann, ef ég skildi hv. þingmann rétt. Ég hef hvergi rekist á það í gögnum málsins. Þegar ég kem að þeirri ákvörðun og fæ kynningu á því í hv. utanríkismálanefnd að til standi að taka þessa gerð upp í EES-samninginn, þá skoðar maður auðvitað þau gögn sem liggja fyrir. Þar fann ég alla vega hvergi dæmi um að einhver hætta væri á ferðinni og hef ekki enn þá séð þá hættu.
Hv. þingmaður kemur inn á umræðuna um sæstreng. Það er auðvitað atriðið sem við ræddum hvað mest í hv. utanríkismálanefnd. Ég held að allir gestir okkar hafi fengið þá spurningu og svörin hafa svo sannarlega borist. Þau eru í þá veru að það séu lögfræðilegir loftfimleikar að velta því fyrir sér að fyrirtæki gætu komið og krafist þess að fá að leggja sæstreng í óþökk við íslensk stjórnvöld og gætu þar af leiðandi farið í mál. Það eru ansi margir sem hafa svarað þeim spurningum og alltaf svarað neitandi. (Forseti hringir.) Þriðji orkupakkinn gengur ekki út á lagningu sæstrengs og það er ekki hægt að skylda íslensk stjórnvöld til að leggja sæstreng eða samþykkja lagningu sæstrengs.