149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:18]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil biðja hv. þingmann að hafa rétt eftir. Mér þykir mjög leitt þegar þingmenn leggja manni orð í munn eins og hv. þingmaður gerði hér. Ég sagði ekki að íslensk stjórnvöld hefðu barist gegn því að þetta yrði innleitt. Við tókum einfaldlega við þessu kefli sem var komið af stað 2013. Við pössuðum hins vegar upp á það að leita undanþágna frá þessu öllu saman í viðræðum við Evrópusambandið, í viðræðum á vettvangi samstarfsins. Það reyndum við að gera en fengum því miður ekki. Síðan er málið í meðferð Alþingis. Hv. þingmaður leggst mjög lágt með því að snúa út úr orðum mínum, verð ég að segja.

Síðan vil ég bara benda hv. þingmanni á það að ég veit ekki betur en að það sé haft eftir upplýsingafulltrúa utanríkisráðuneytisins í Stundinni, af öllum blöðum, að þegar búið er að aflétta þessum stjórnskipulega fyrirvara þá komi fram reglugerð sem innihaldi fyrirvarana.