149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:19]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Miðflokkurinn byggir málflutning sinn á eigin tilbúnu hugmyndum um hvað gæti gerst. Það er margt gefið í skyn. Það er gefið í skyn að það sé hægt að þvinga fram einkavæðingu orkukerfisins á Íslandi. Það er gefið í skyn að ACER hafi valdheimildir til að hlutast til um orkuframleiðslu og um tengingar yfir landamæri. En hvað með harðar staðreyndir?

Hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson nefnir Þýskaland, en er ekkert viss um hvað raunverulega sé þar á ferðinni. Þannig að við erum engu nær. Hann nefnir Frakkland og sölu ríkisrekinna orkufyrirtækja, en eftir því sem ég best veit er um að ræða vanefndir Frakka á eigin áætlun, ekki þvinganir ESB. Önnur mynd en hv. þingmaður bregður upp.

Svo nú ætla ég að leggja fram spurningar til þess að fókusera umræðuna.

Er dæmi að finna um þvinganir, fyrirskipanir, hótanir, hvaðeina, af hálfu ESB, t.d. í krafti ACER, og þá í ESB-löndum, í þá veru að land eða ríki missi einhvern hluta yfirráða yfir orkuauðlindum sínum, eða að ESB, ACER hafi hlutast til um hvar, hvenær og hve mikið virkjað er eða hve mikið er flutt út eða keypt af raforku um einhvers konar tengivirki?

Því þetta er myndin sem þeir draga upp af framtíð Íslands. Ég þarf bara einfalt svar. Ef þingmaðurinn veit ekki um slík dæmi er það sennilega nokkuð til staðfestingar um að við höfum rétt fyrir okkur sem segjum að myndin sé ekki svona.