149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:23]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Það er ágætt að hv. þingmaður hafi áhyggjur af Vinstri grænum (GBS: Ég hef það.) en staðreyndin er bara sú að við erum að fara eftir staðreyndum, ekki hægri eða vinstri. Við erum bara að fara eftir hinum raunverulegu valdheimildum, ACER, sem eru ekki þær sem hv. þingmaður segir.

Þá ætla ég líka að koma að innri markaðnum sem núna, skulum við segja, byggist á frjálsum viðskiptum með raforku, frjálsum viðskiptum og eftirliti og öðru sem því fylgir, um þau tengivirki sem eru fyrir hendi og um þau tengivirki sem viðkomandi ríki vill byggja.

Hvar er þá stefnu ESB að finna, eða hugmyndafræði, um að innri markaðurinn verði með því sniði sem hv. þingmaður segir? Með verðmyndun, með afskiptum ESB af innri orkumálum annarra ríkja? Hvar er þessa hugmyndafræði að finna? Hv. þingmaður segir að hún sé til. Þá hlýtur hann að vita hvar hana er að finna.