149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:26]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M):

Virðulegi forseti. Við erum hér að ræða orkupakka þrjú enn og aftur og sýnist sitt hverjum og ágætt að það komi ýmsir vinklar á þetta mál. Mig langar til að fara aðeins yfir ferlið af því að ég hef aðeins áhyggjur af því hvort menn og konur geri sér alveg grein fyrir því hvað við erum að gera eða hvort fólk sé statt í einhverri óskhyggju um það sem við erum að gera.

Orkupakkinn samanstendur af reglugerð 713/2009, 714/2009, 715/2009 og innleiðingu tilskipana, m.a. er það Evróputilskipun nr. 93/2017, frá 5. maí, sem inniheldur þennan stjórnskipulega fyrirvara. Svo við áttum okkur á því hvernig þetta virkar varðandi samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, þ.e. í raun þau EES-lönd sem við erum hluti af, að við höfum skuldbundið okkur til að taka upp lög og reglugerðir frá Evrópusambandinu eftir að um þau hefur verið fjallað inn í sameiginlegu EES-nefndinni. Nú er þetta mál svo vaxið að búið er að fjalla um þessa tilteknu tilskipun inn í sameiginlegri EES-nefnd og búið að áframsenda hana til Alþingis. Hún mun taka gildi með stjórnskipulegum fyrirvara, þ.e. Alþingi þarf að aflétta þessum stjórnskipulega fyrirvara.

Noregur og Liechtenstein hafa nú þegar gert það en fyrir liggur að Alþingi Íslendinga þarf að gera það til að þetta taki gildi. Hvað felst í því eins og málið er sett upp hér? Það er yfirlýst markmið stjórnvalda að hluti þessarar tilskipunar verði innleiddur í íslenskan rétt, það er þingsályktunartillagan sem hér liggur fyrir, og að hún verði innleidd með lagalegum fyrirvara við innleiðinguna, þ.e. að settur verði lagalegur fyrirvari við reglugerð. Þessi lagalegi fyrirvari á, eftir því sem ég kemst næst, núna að eiga við reglugerð. Við verðum að spyrja okkur að því: Heimilar EES-samningurinn nákvæmlega þetta fyrirkomulag, að við innleiðum gerðina og setjum síðan lagalegan fyrirvara?

Ef það koma upp álitamál eftir innleiðingu þriðja orkupakkans, hver er það sem dæmir það ef hagsmunaaðilar telja sig eiga eitthvað undir því sem varðar þriðja orkupakkann? Hver dæmir? Verður það ekki EFTA-dómstóllinn? Eða misskil ég þetta eitthvað? Eftir hvaða lögum dæmir EFTA-dómstóllinn? Hann mun að öllum líkindum dæma eftir Evrópulöggjöfinni.

Fram kom í fyrri ræðu að nýlega ákvað ESB að draga átta aðildarríki fyrir dóm fyrir brot, fyrir samningsbrot á þjónustutilskipun frá 2006 og reglugerð um opinber innkaup frá 2014, fyrir að hafa ekki farið í opinber útboð. Þessi ríki voru: Austurríki, Frakkland, Þýskaland, Pólland, Portúgal, Svíþjóð, Bretland og Ítalía. Evrópusambandið tekur sér vald til þess að hlutast til um rekstrarformið og nýtingu þessarar auðlindar.

Í þingsályktunartillögunni segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Verði þessi tillaga samþykkt verður reglugerð (EB) nr. 713/2009 innleidd í íslenskan rétt með hefðbundnum hætti en með lagalegum fyrirvara um að grunnvirki sem gera mögulegt að flytja raforku milli Íslands og orkumarkaðar ESB verði ekki reist eða áætluð nema að undangenginni endurskoðun á lagagrundvelli reglugerðarinnar og komi ákvæði hennar sem varða tengingar yfir landamæri ekki til framkvæmda fyrr en að þeirri endurskoðun lokinni. Þá verði jafnframt tekið enn frekar og sérstaklega til skoðunar á vettvangi Alþingis hvort innleiðing hennar við þær aðstæður samræmist íslenskri stjórnarskrá.“

Með samþykkt þessarar þingsályktunartillögu verður hinum stjórnskipulega fyrirvara aflétt, ekki satt? Þ.e. gerðin tekur gildi. Eða ætlar ráðherrann kannski að ganga gegn eigin tillögu sem Alþingi hefur samþykkt og fara ekki eftir henni? Eftir það munu þeir sem eiga hagsmuna að gæta í einhverjum orkumálum eða því sem heyrir undir orkupakka þrjú leita réttar síns fyrir EFTA-dómstólnum.

Ég hef áhyggjur af því að við séum að byrja á öfugum enda, að við gerum þetta ekki rétt. Ég undrast það satt að segja, af því að við erum öll sammála um að við viljum hafa þennan fyrirvara, við erum ekki sátt við að innleiða þetta í íslenskan rétt, að við gerum þá ekki eins og EES-samningurinn býður upp á og förum með þetta í sáttameðferð.