149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:31]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmenn Miðflokksins staglast á yfirþjóðlegum ákvörðunum sem eigi að einkenna framtíðina á markaði ESB í orkumálum. Þegar þeir eru spurðir um, eins og hér rétt áðan, hver stefnan sé þá er rætt um viðskipti milli landa, orkuverð sem er gegnsætt og gott eftirlit er viðhaft og annað slíkt. Það er allt rétt og satt. Þannig er það því að þetta er einmitt innihaldið og stefnan að viðbættu hækkandi hlutfalli grænnar orku. Þetta er allt á grunni frjálsra viðskipta og samninga milli landa. Það er ekki með valdheimildum ACER til að skikka að ofan ríki til orkuskipta á tilteknum hraða, ekki með ákvörðunum um að ríkið skuli selja tiltekið magn orku úr landi eða verði að leggja einhverja tilteknar línur og sæstrengi. Nei. Svo nú vil ég spyrja hv. þingmann sem var hér á undan mér: Er hann ósammála þessu eða sammála þessu?

Síðan kemur að sæstrengnum: Hvernig á Evrópusambandið að geta þvingað okkur til að leggja eða taka á móti sæstreng — og ég er ekki bara að tala um að leggja sæstreng heldur líka taka á móti sæstreng — þvert ofan í öll innri lög um framkvæmdaleyfi, kerfisáætlanir, skipulagslög, mat á umhverfisáhrifum og ég veit ekki hvað ég á að telja upp meira? Hvernig á það að fá leyfi til að leggja, við skulum segja í okkar tilviki, sæstreng um landgrunnið og efnahagslögsöguna? Ætla menn virkilega að segja okkur að Evrópusambandið, í gegnum EES-samninginn, hafi leyfi til þessa eða geti á einhvern máta farið þannig fram að þetta sé staðreynd? Nú vil ég fá skoðun hv. þingmanns á þessum sæstreng sem með einhverju móti er hægt að tengja við landið.