149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:33]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni kærlega fyrir fyrirspurnina. Um innri markaði og gerðir Evrópusambandsins segir m.a. að þær lúti einkum að sérleyfis- og samkeppnisþáttum, að jöfnu aðgengi að markaðsbúskap í raforku- og jarðgasviðskiptum. Enn fremur segir að með þriðju orkutilskipuninni sé gengið lengra í að stuðla að virkum raforkumarkaði með því að tryggja aðskilnað í eignarhaldi.

Hvernig skyldi það nú vera gert? Hvernig skyldi vera farið að því að ryðja úr vegi bæði pólitískum og viðskiptalegum hindrunum? Það skal tryggt með ýmsum úrræðum. Þetta er tiltölulega opið. Það er kannski það sem verið er að gera athugasemd við í álitsgerðum lögfræðinga, að valdheimildirnar séu of opnar og ekki nægjanlega takmarkaðar. Nú liggur þriðji orkupakkinn hér fyrir. Sá fjórði er á leiðinni og sá fimmti er í smíðum. Ef við stígum þetta skref þá munu hin fylgja. Það er alveg ljóst. Það veit hv. þingmaður mætavel og er í lagi að ræða hér.

Fimmti orkupakkinn er ekki fullsmíðaður. Kannski vill hv. þingmaður koma hér upp í ræðu á eftir og upplýsa okkur um það hvað stendur í honum og hvað verður innleitt þar og hvað ekki. Getur hann fullyrt að þar verði ekki aukið á nokkurn hátt við valdheimildir ACER eða við heimildir Evrópusambandsins? Þannig er málið. Það sem er alveg furðulegt í þessu öllu er það að þó að menn séu sammála um að innleiða, með fyrirvaranum um sæstrenginn, að þá skal alls ekki fara þá leið sem samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið kveður á um. Nei, það skal fara einhverja heimatilbúna leið og það er enginn sem getur komið upp og svarað því hver lagalegi fyrirvarinn er, hvort hann haldi eða nefnt dæmi um eitthvað sambærilegt þar sem lagalegir fyrirvarar hafa verið settir og hafa haldið.