ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að ég átta mig ekki alveg á því hvert hv. þingmaður er að fara. Vegna þess að þetta er lifandi plagg, þetta er ekki lokað skjal sem mun ekki taka breytingum. Það er alveg ljóst að fjöldamargar ræður hafa verið fluttar af þeim sem eru fylgjandi, stjórnarliðum, og þeim sem eru andstæðingar, þar sem sagt hefur verið: Við viljum ekki sæstreng. Og það er sett inn í lagalegan fyrirvara. Ég spyr í ræðu minni: Hvers vegna er þessi leið farin?
Það er enginn sem getur komið hér upp og fullyrt að ekki verði gerð krafa um að heimilað verði að leggja sæstreng. Eða hvað þýðir það „að ryðja úr vegi pólitískum og viðskiptalegum hindrunum“? Þýðir það ekki með gagnályktun akkúrat það að það skuli heimilað? Og hver úrskurðar? Er það ekki ACER sem hefur ákvörðunarvaldið og semur tilskipanirnar fyrir ESA?
Ég skil bara ekki, hæstv. forseti, hvað er svona erfitt að skilja í þessu.