ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Mig langar að nefna það enn og aftur. Ég ræddi oft við hv. þingmann í síðustu viku um þetta mál og um þennan lagalega fyrirvara. Hann fer aftur með rangt mál, sem er skrýtið miðað við hvað þetta hefur komið ótrúlega oft fram hér. Og nú hefur meira að segja reglugerðin verið send á nefndarmenn atvinnuveganefndar og hv. utanríkismálanefndar til að hægt sé að sjá að fyrirvarinn er tekinn nákvæmlega upp úr þingsályktunartillögunni sem hér er fjallað um.
Það er engin spurning að þetta er auðvitað eins og alltaf var boðað, eins og við margítrekuðum hér í síðustu viku og er mjög skýrt í reglugerðinni og það er ekki hægt að segja annað þegar það er einnig búið að fást staðfest með sameiginlegum skilningi frá orkumálastjóra ESB og EFTA-löndunum í sameiginlegu EES-nefndinni að þetta sé kýrskýrt, eins og mig langar að orða það hér í dag.
Mig langar að spyrja hv. þingmann, af því að hann hefur kannski ekki fjallað um það með beinum hætti í ræðunum sínum: Hvað er það í þriðja orkupakkanum sem hann hefur áhyggjur af? Mikið er búið að nýta tímann í að fabúlera um það sem ekki er í honum og það sem gæti mögulega einhvern tímann verið einhvern veginn í honum eða næstu orkupökkum. Ég treysti hæstv. utanríkisráðherra og hv. utanríkismálanefnd til að vakta það mál vel, enda er það á byrjunarstigi hjá Evrópusambandinu. Hvað er það sem er í þriðja orkupakkanum sem hv. þingmaður getur bent á, sem hann hefur áhyggjur af? Ég byrja kannski á að fá svar við því.