ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Hér kemur hv. þingmaður upp og talar um að þetta liggi allt saman kýrskýrt fyrir og að hún hafi átt orðastað við mig áður í fyrri ræðum um fyrirvarana svokölluðu. Hér um klukkan fjögur síðastliðinn fimmtudag, ef ég man rétt, var uppþot hjá stjórnarliðum þegar spurt var út í þessa lagalegu fyrirvara. Hv. þingmaður tilgreindi að þá væri að finna í þingsályktunartillögunni og að þeir væru orðréttur þar.
Ég held að það sé ansi langt seilst að segja að þetta séu lagalegir fyrirvarar við reglugerð sem haldi. Eða getur hv. þingmaður bent á að slíkir fyrirvarar hafa verið gerðir annars staðar og þeir hafi haldið? Ég tel ekki.
Ég hef reyndar fjallað ítrekað í ræðum mínum um af hverju áhyggjur mínar snúast í þessu máli. Þær snúa að innleiðingunni fyrst og fremst, að stjórnarskránni, að vinnubrögðunum sem höfð eru uppi.
Ég hef sagt það ítrekað hér að ef það er svo að þingheimur er algjörlega sammála um að það sé í lagi að innleiða þessa gerð en með fyrirvara, er verið að segja í sama orði að við séum ekki sátt við orkupakkann í heild sinni. Ef við erum ekki sátt við orkupakkann í heild sinni hef ég áhyggjur af því, herra forseti, að það sé gert á þann hátt að settir séu lagalegir fyrirvarar sem ekki nokkur maður treystir sér til að koma hér upp í pontu og staðfesta eða halda fram fullum fetum að muni halda og styðja mál sitt með rýni lögfróðra manna. Að því beinast áhyggjur mínar. Vegna þess að ég get ekki frekar en aðrir gert mér í hugarlund hvað kemur svo í fjórða og fimmta orkupakkanum.