ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Það gleður mig mikið ef það er ekkert í þriðja orkupakkanum sem hv. þingmaður hefur í raun áhyggjur af. Það gleður mig afar mikið. Og ef það er einungis lagalegur fyrirvari skal ég með glöðu geði vera hér í allt kvöld og ræða hann sérstaklega, af því að hann er smíðaður eftir tillögu Stefáns Más Stefánssonar og Friðriks Árna Hirsts, þeirra fræðimanna sem hv. þingmanni og hv. þingmönnum úr Miðflokknum er tamt að vísa til. Hann er lagalegur í þeim skilningi að hann felur í sér að við munum ekki taka upp ákvæði og þau munu ekki taka gildi. Það er það sem stendur skýrum orðum í þingsályktunartillögunni og þar stendur í reglugerðinni sem hv. þingmönnum hefur verið send og mun taka gildi síðar.
Ég fagna því að þetta sé það eina sem hv. þingmenn vilja fá nánari útskýringu á, af því að við höfum leitast við að svara því og meira að segja sent reglugerð þar sem fyrirvararnir eru, beint upp úr þeirri þingsályktun sem við fjöllum (Forseti hringir.) hér um.
Þannig að ég fagna því sérstaklega að hv. þingmaður hafi einungis áhyggjur (Forseti hringir.) af þessu. Allir fræðimennirnir töldu meira að segja að þessi lagalegi fyrirvari væri óþarfur. En hann er byggður á tillögum þeirra fræðimanna sem hv. þingmaður vísar oftast í.
(Forseti (BN): Forseti minnir enn og aftur þingmenn á að virða tímamörk.)