149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:44]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er gaman að geta glatt með fáum orðum og ég fagna því líka að hv. þingmaður hlakki til að taka þátt í umræðunni hér í kvöld og í nótt, vegna þess að hv. þingmaður var hér í húsi liðna nótt, aðfaranótt fimmtudags og var ítrekað kallað eftir því að hún tæki þátt í umræðunni, en þá treysti hún sér ekki til að koma hér í ræðustól og útskýra mál sitt. En eftir því sem ég kemst næst, eftir samtöl mín við lögfróða menn, er afar hæpið að lagalegur fyrirvari felist í reglugerð sem á að vera lagalegur fyrirvari við eitthvað sem leitt er í lög. Lög standa reglugerðum framar og þjóðaréttur landsrétti. Ég held að það hljóti að vera alveg skýrt. Ég held að einhver verði að fara að komast að hér í pontu sem getur útskýrt fyrir okkur hvort fordæmi séu fyrir því og hvort samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið bjóði upp á þetta fyrirkomulag svo það haldi.