149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:45]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég skal reyna, en ég er reyndar ekki viss um að tíminn dugi mér, en ég á ræðu hér á eftir og hyggst fara í fleiri ef tími gefst til þess. Ég þarf nú á einhverjum tímapunkti að fara heim.

Það kemur fram í áliti Stefáns Más Stefánssonar og Friðriks Árna Friðrikssonar Hirsts, með leyfi forseta:

„Verður ákvörðun Alþingis um hvort aflétta eigi stjómskipulegum fyrirvara Íslands við þriðja orkupakkann og innleiða hann í íslenskan landsrétt að miðast við þá forsendu að grunnvirkjum yfir landamæri verði komið á fót hér á landi, en við þær aðstæður myndi reyna á umrætt valdframsal til ESA, einkum samkvæmt reglugerð nr. 713/2009.“

Ég er að nefna þetta til að benda á að fyrirvararnir snúast ekki um hvað EES eða ESA finnist um þá. Þeir eru til þess að þetta mál standist okkar stjórnarskrá samkvæmt okkar lagakerfi og ekki EES.

Hv. þingmaður fór að velta því fyrir sér: Hvað ef einhver leitar réttar síns gagnvart 7.–9. gr. reglugerðar nr. 713/2009 gagnvart EFTA-dómstólnum? Það sem ég er að benda á er að það er ekkert andlag slíkrar kæru, það er enginn sæstrengur á Íslandi og verður ekki nema sú ákvörðun verði tekin hér. Þar af leiðandi er ekkert í ákvæðum 7.–9. gr. í umræddri reglugerð sem er hægt að kæra samkvæmt, þær varða einungis sæstreng eða tengingar sem þegar eru til staðar og það er alveg skýrt, þar á meðal í áliti hv. fræðimanna. Ég verð einnig að lesa úr d-lið 3. töluliðar umsagnar sömu fræðimanna við þetta mál en þar stendur, með leyfi forseta:

„Valdheimildir ACER (ESA) ná ekki til ákvarðana um hvort sæstrengur verður lagður. Þær valdheimildir gilda einungis þegar slík tenging er til staðar. Því mun ekki reyna á þessi ákvæði nema Alþingi ákveði að tengja Ísland við raforkumarkað ESB með sæstreng og því getur enginn byggt rétt sinn á þessum ákvæðum.“

Það er ekkert að kæra, virðulegi forseti. Þetta snýst ekkert (Forseti hringir.) um það hvað EFTA-dómstólnum finnst. Það snýst um samræmi við stjórnarskrá og því samræmi er náð með þessu máli og það er óumdeilt, (Forseti hringir.) jafnvel á meðal íhaldssömustu fræðimanna um efnið.