149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:59]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég ætla að byrja á að taka undir með hv. þingmanni og hrósa þeim ungmennum sem söfnuðu í þessa auglýsingu enda afar mikilvægt að við hugsum um framtíð unga fólksins þegar við ræðum mál hér á þinginu, sama af hvaða tagi það er.

Það er einmitt þess vegna sem ég er á þessari skoðun og ég veit að margir sem tóku þátt í þessari auglýsingu af því unga fólki sem ég þekki og starfa í stjórnmálum, mismunandi stjórnmálaflokkum, eru sammála mér um að það er fullkomlega ábyrgðarlaust að nýta þennan öryggisventil, eða neyðarventil, í þessu máli.

Mér finnst sérstakt að hv. þingmaður ræði um að þetta sé einhvers konar sáttaferli og það þurfi að setja fordæmi í þessu máli núna. Hv. utanríkismálanefnd fjallaði mikið um hvort þörf væri á því í þessu máli og niðurstaða meiri hlutans var að svo væri ekki. Þessi ventill hefur ekki verið notaður í 25 ára sögu samningsins. Því myndi ég telja að það væri fullkomlega ábyrgðarlaust að stefna EES-samningnum í ákveðna hættuför út af engu. Það þýðir þó ekki að hæstv. ríkisstjórn muni ekki nýta þessa heimild ef þörf er á því. Hún mun svo sannarlega gera það þegar þörf er á slíku, af því að þarna er mikilvæg heimild sem nota skal vandlega og skynsamlega þegar á þarf að halda. Við sjáum ekki þá þörf núna og allra síst er tekið fram í minnihlutaáliti utanríkismálanefndar að hverju þessi meint þörf beinist.

En mig langar að spyrja hv. þingmann, af því að hann fór hér yfir sáttameðferðina: Hvað myndi hann fara með inn í þá sáttameðferð? Hvað vill hann fá út úr henni? Hverju vill hann breyta?