149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:01]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Háæruverðugur forseti. Mér þótti nú óþarfi hjá hv. þingmanni að nefna það sérstaklega að í þessari auglýsingu væru margir liðsmenn ungliðasamtaka ákveðinna stjórnmálaflokka. Ég hafði ekki kosið að gera það að umtalsefni. En allt í lagi með það, það er ekkert verra þó að fólk sem er virkt í ákveðnum stjórnmálaflokkum láti til sín taka með auglýsingu. En við hljótum þó að geta verið sammála um að ef viljinn er raunverulega sá hjá þessu fólki og öðrum að standa vörð um EES-samninginn þá þurfum við að nýta þá kosti sem hann gefur okkur, ekki hvað síst þegar um umdeild og erfið mál er að ræða.

Hv. þingmaður spyr mig hverju eigi að ná fram með því að vísa málinu aftur til sameiginlegu EES-nefndarinnar. Því er auðsvarað, virðulegur forseti: Við hljótum að vilja ná fram a.m.k. vilja ríkisstjórnarinnar í málinu. Við hljótum að vilja a.m.k. fá staðfestingu á því að þeir fyrirvarar sem ríkisstjórnin hefur boðað, þó það hafi reynst erfitt fyrir fulltrúa stjórnarflokkanna að benda á þá fyrirvara og menn hafi vísað í margar áttir í þeim efnum, við hljótum að vilja að þeir fyrirvarar séu þá a.m.k. staðfestir á eðlilegan hátt í samræmi við samninginn. Það getur ekki verið að íslensk stjórnvöld séu komin á þann stað, og þó óttast maður það stundum miðað við umræður um þetta mál, að þora ekki einu sinni að nýta þau ákvæði sem samningurinn þó tryggir okkur til þess að fá formlega staðfesta fyrirvara, fá undanþágur frá þeim ákvæðum sem eiga ekki við okkur, heldur ætli áfram að beita því sem ákveðinn fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins kallaði lofsverðar blekkingar.