ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Mig langaði til að spyrja hv. þingmann hvort hann væri reiðubúinn til að draga til baka það sem kemur fram í nefndaráliti hv. þingmanns við málið, en þar stendur, með leyfi forseta:
„Það er verulegum vafa undirorpið að innleiðing þriðja orkupakka Evrópusambandsins sé í samræmi við stjórnarskrána.“
Síðan er farið út í álitsgerð Stefáns Más Stefánssonar og Friðriks Árna Friðrikssonar Hirsts.
Við meðferð málsins í hv. utanríkismálanefnd barst umsögn frá þessum sömu hv. fræðimönnum þar sem tekinn var af allur vafi — þar stendur, með leyfi forseta:
„Enginn lögfræðilegur vafi er á því að sú leið sem við lögðum til og lögð er til grundvallar í þingsályktunartillögu utanríkisráðherra er í samræmi við stjórnarskrá. Að okkar mati skiptir sú staðreynd mestu.“
Miklu frekar voru athugasemdir við þá leið sem er farin þær að það væri svo sem hugsanlegt að ESA myndi gera einhverja athugun á þessu. En síðan færa þeir rök í fjórum liðum fyrir því hvers vegna það sé afskaplega ólíklegt. Persónulega tel ég það reyndar óhugsandi vegna þess að það er ekkert andlag slíkrar athugunar meðan enginn er sæstrengurinn. En það er skýrt af gögnum málsins að þetta stenst stjórnarskrá.
En ókei, gott og vel. Segjum sem svo að ég hafi rangt fyrir mér. Þá langar mig að biðja hv. þingmann um að segja mér, ef hann er ekki reiðubúinn til þess að taka það til baka að þetta mál brjóti í bága við stjórnarskrá, hvaða fræðimenn komu á fund nefndarinnar eða skrifuðu henni umsögn þar sem einhverjar efasemdir komu fram um að málið, eins og það er lagt fram núna, standist stjórnarskrá.