149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:12]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður svaraði reyndar ekki spurningu minni, alla vega ekki þannig að ég skildi það. En ef ég reyni að krafsa mig fram úr svari hv. þingmanns, þýðingu svars við því sem ég spurði, þá er svarið: Nei, að engir hafi komið fyrir nefndina og enginn hafi sent nefndinni umsögn með nokkrum vafa um að þetta mál, eins og það stendur í dag, standist stjórnarskrá.

Eins og hv. þingmaður orðaði það þá frestar það vandanum. Ég myndi segja að vandinn væri bara ekkert lengur bundinn við þetta mál. Hann kæmi hins vegar aftur upp ef fram kæmi tillaga um að leggja sæstreng og sú tillaga er einfaldlega ekki hér til staðar. Hún er ekki til umræðu og persónulega myndi ég ekki heldur styðja slíka tillögu. En vegna þess að þessum stjórnskipulega vafa er ýtt yfir á þá spurningu, það atvik sem virkjar 7.–9. gr., hinar umdeildu, sem væri lagning sæstrengs, þá þýðir það að ekki er vafi á því hvort þetta mál standist stjórnarskrá eða ekki. Ég vona að ég sé skýr. Ég kann ekki að vera skýrari en þetta. Það er enginn vafi sem ég sé í umsögnum málsins og ég hef ekki heyrt um neina lögfróða menn, álit hverra hefur verið hér til umræðu, sem hafa lýst nokkrum einasta vafa um að þetta mál, eins og það er lagt fram hér, standist stjórnarskrá. Engan.

En í áliti hv. þingmanns, í minnihlutaálitinu, er látið eins og þetta mál, eins og það er lagt fram núna, gæti brotið stjórnarskrá. Þess vegna verð ég að spyrja aftur, reyndar með þeirri breytingu að ég hefði gaman af því að fá álit hv. þingmanns á þeirri greiningu minni að stjórnarskrárspurningin flytjist yfir á lagningu sæstrengs sem er ekki hér til umfjöllunar, en gæti tafið fyrir sæstrengstillögu ef hún kæmi hingað upp: Bárust einhverjar athugasemdir frá lögfróðum mönnum sem komu á fund nefndarinnar, eða sendu henni umsögn, þar sem einhver (Forseti hringir.) vafi var talinn leika á því að þetta mál, eins og það er lagt fram hér, (Forseti hringir.) standist stjórnarskrá?