ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Ég ætlaði ekki í andsvar við hv. þingmann, og ef ég ætlaði í andsvar ætlaði ég að leiðrétta það sem hann sagði frekar en að spyrja hann. Síðan sagði hv. þingmaður svolítið sem mig langar til að spyrja út í. Hann sagði að við ættum ekki að gefa eftir og orðaði það síðan þannig, held ég alveg örugglega í andsvari við hv. 3. þm. Norðausturkjördæmis, að við ættum ekki að vera lítil í okkur.
Ég velti fyrir mér með hliðsjón af staðreyndum málsins, að því gefnu að við séum með sameiginlegan skilning á staðreyndum málsins, ef sá skilningur er sameiginlegur þá getum við útkljáð hann með lestri málsins, með staðreyndunum sem blasa okkur í málinu sjálfu, í skriflegum gögnum og óumdeildum staðreyndum sem þar fylgja. En spurningin er þessi: Gefa hvað eftir? Hvað er það sem Ísland á að vera að fórna með því að samþykkja þennan þriðja orkupakka? Hvað í ósköpunum er það?
Jafnvel þótt við tökum með 7.–9. gr. í reglugerð 713/2009 erum við ekki að gefa neitt eftir. Sömuleiðis finnst mér þetta í samræmi við orðræðuna um að við gætum alveg lagt sæstreng, en eigum þá að gera það á okkar forsendum. Ef við leggjum sæstreng þá munum við alla vega alltaf gera það á okkar forsendum og þeirra sem við leggjum sæstreng til. Við leggjum ekki bara sæstreng til Bretlands og ákveðum bara sjálf allt í kringum það. Það er galin pæling eðli málsins samkvæmt, vegna þess að við erum að tala um milliríkjasamskipti. Þá koma auðvitað fleiri að en Íslendingar. Annað er ekki rökrétt og á hvergi heima.
En málið brýtur ekki gegn stjórnarskrá. Það er bara ljóst. Ég nenni eiginlega ekki að rífast um það lengur, virðulegi forseti. Ef einhver heldur öðru fram þá er það bara rangt. Þetta felur ekki í sér sæstreng heldur þvert á móti mun þetta torvelda lagningu hans, eins og ég hef margoft farið yfir. Það felur ekki í sér hækkun verðlags umfram sveiflur innan hvers einasta heimilis vegna þess að eftirlitskostnaðurinn hækkar jú pínulítið um kannski 47 millj. kr. mínus 49 milljónir annars staðar hjá ríkissjóði. Þetta felur ekki í sér uppskiptingu fyrirtækja. Þetta felur ekki í sér einkavæðingu. Þetta felur ekki í sér aukna (Forseti hringir.) markaðsvæðingu. (Forseti hringir.) Orka er nú þegar markaðsvara og verður það áfram, óháð þriðja orkupakkanum. Okkar forsendur hljóta að vera gagnsæi, samkeppniseftirlit og neytendavernd. En ég verð bara að spyrja: (Forseti hringir.) Gefa hvað eftir? Vera lítil í okkur gagnvart hverjum?
(Forseti (ÞorS): Forseti minnir hv. þingmenn á tímamörk.)