ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Mér finnst alls ekki of langt seilst og mér finnst bara fínt að það sé mikil og ítarleg umræða um þetta, kvarta ekki undan því. Mér finnst það ágætt og hún mætti vera lengri mín vegna. Það er mér algerlega að meinalausu að þessi umræða taki allan þann tíma sem hún þarf til að sannfæra hvern og einn, alla vega upp að því marki að viðkomandi telji sig ekki hafa meira til málanna að leggja. Kannski verður það aldrei. Það má vera.
Hvað varðar þennan texta í sambandi við hindranir þá er það náttúrlega eitt af meginmarkmiðum Evrópusambandsins og EES að koma í veg fyrir hindranir á markaði almennt, hindranir sem koma í veg fyrir samkeppni eða frjálst flæði fólks, vöru, þjónustu og fjármagns. Fjórfrelsið í EES-samningnum. Það er markmiðið og það er jákvætt. Það er gott. Það eiga ekki að vera hindranir af hálfu stjórnvalda gagnvart frjálsum viðskiptum, hvort sem það er með orku eða eitthvað annað.
Það sem mig grunar að geti valdið því að fólk óttist svolítið þennan hluta er samhengið við sæstreng. Það er í raun og veru það eina málefnalega sem ég sé sem gæti útskýrt andstöðu við það að fjarlægja hindranir á verslun með þessa vöru, orku. En í þriðja orkupakkanum er ekki tilgreint neitt sem neyðir okkur eða hvetur til þess að vera með sæstreng eða leggja sæstreng heldur er gert ráð fyrir því að það þurfi að setja ákveðnar reglur um þær tengingar sem þegar eru til staðar til að tryggja neytendavernd, gagnsæi og samkeppniseftirlit, sem allt er jákvætt og gott.
Mig grunar að þarna sé einhver misskilningur á ferð í umræðunni gagnvart þessu hugtaki, hindranir. Það er ekki verið að tala um að ekki sé til sæstrengur, það er ekki hindrun í skilningi þriðja orkupakkans. Þetta er ekki ein af þeim staðreyndum sem ég átti við, bara svo það sé sagt. Það eru ekki bara staðreyndir í þriðja orkupakkanum, það er líka ýmislegt sem þarf túlkun. Ég var bara að kvarta undan þessu áðan vegna þess að mér finnst fólk oft koma í pontu og segja eitthvað sem er á skjön við staðreyndir og segir eitthvað sem er ekki að finna í orkupakkanum. Eins og t.d. að hann komi eignarhaldi á auðlindum við. Það er staðreynd að svo er ekki. (Forseti hringir.) Það er bara spurning um hvort fólk lesi þetta eða ekki.
(Forseti hringir.) Hvað varðar það sem hv. þingmaður nefndi finnst mér allt í lagi að ræða það. (Forseti hringir.) Þá er líka skýringin sú: Hindranir felast ekki í því að það sé ekki til sæstrengur, (Forseti hringir.) hindranir felast í einhverju sem stjórnvöld gera til að takmarka (Forseti hringir.) með ómálefnalegum hætti frjálsa verslun með vöru og þjónustu.
(Forseti (ÞorS): Enn minnir forseti á tímamörk.)