149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:31]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér af vitandi eru reyndar ekki framsalsákvæði í samráðsgátt ríkisstjórnarinnar, en það eru vissulega auðlindaákvæði og umhverfisákvæði. Það er reyndar annað ákvæði sem mér finnst að við ættum að ræða í sambandi við þetta mál vegna þess að ég held að það ákvæði, óháð því nákvæmlega hvaða útfærsla er farin, frumvarp stjórnlagaráðs, afleidd skjöl eða það sem er í samráðsgáttinni, myndi svara áhyggjum fólks, áhyggjum sem ég tel ekki vera á rökum reistar.

Mér finnst alltaf betra að fólk þurfi ekki að hafa áhyggjur af einhverju. Með öðrum orðum finnst mér mjög mikilvægt að við höfum auðlindaákvæðið í stjórnarskrá.

Mér endist ekki tíminn í andsvari, því miður, til þess að fara ítarlega í gegnum muninn á auðlindaákvæðinu eins og það er í samráðsgátt og hvernig það er í frumvarpi stjórnlagaráðs og afleiddum skjölum. Það er í eðli sínu frekar umfangsmikið atriði og krefst þess að við skiljum hugtök á borð við þjóðareign og förum út í eignarréttarleg atriði og þess háttar og sömuleiðis hvert markmið greinarinnar sé, sem er það að tryggja að auðlindir verði í þjóðareign, og t.d. að ekki myndist varanlegur eignarréttur í gegnum einhverjar hefðir eða einhvers konar óbein eignarréttindi. En það er mjög viðamikil umræða.

Reyndar verður haldinn fundur hjá Pírötum bráðlega, ég man ekki nákvæmlega dagsetninguna akkúrat núna, en það verður fundur hjá okkur þar sem ég ætla að kynna þetta fyrir flokksmeðlimum mínum og halda umræður um það. Ég get ekki farið af neinni nákvæmni eða neitt ítarlega út í auðlindaákvæðið eða muninn á þessum tillögum.

Þó skal ég segja eitt: Það eru allir sammála um að það eigi að vera ákvæði um þjóðareign á auðlindum í stjórnarskrá. Ég veit ekki um neinn flokk sem er á móti því. Ágreiningurinn snýst að minni reynslu fyrst og fremst um gjaldtöku, hvernig henni skuli háttað, á hvaða forsendum hún skuli vera og hvernig það skuli orðað í meginefni ákvæðisins og sömuleiðis í greinargerð. (Forseti hringir.)

Nú er tíminn búinn, virðulegur forseti, en ég þakka hv. þingmanni spurninguna vegna þess að hún er góð og mikilvæg og varðar málið.