ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Er það skoðun hv. þm. Helga Hrafns að stjórnarskráratriðið sé óumdeilt í þessu máli, að teknu tilliti til þess að margtilvitnaðir fræðimenn, Stefán Már Stefánsson og Friðrik Árni Hirst, virðast leggja upp með þann skilning að það sé verið að fresta hinu stjórnskipulega vandamáli? Ég átta mig ekki á því hvernig hv. þingmaður getur slitið þetta tvennt í sundur. Auðvitað er stjórnskipulega vandamálið enn þá til staðar þó að því sé frestað, rétt eins og fyrir allnokkru síðan hið svokallaða greiðsluskjól til sjö ára núllaði ekki út kröfurnar sem uppi voru heldur fór bara tíminn að líða. Þannig að ég skil ekki hvernig hv. þingmaður kemur því heim og saman að stjórnskipulegu álitaefnin séu leyst að fullu með þessari útfærslu á sama tíma (Forseti hringir.) og þessir fræðimenn segja beinlínis að það sé bara verið að fresta vandamálinu.