ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Önnu Kolbrúnu Árnadóttur fyrirspurnina. Ég verð bara að segja: Ég vona ekki, innilega ekki, að þessi tenging geti átt sér stað. En ég er hræddur um að það væri hægt. Og það er annað sem gerir mig skelfingu lostinn, en það er þessi fyrirhugaða vindorkuframleiðsla á Vestfjörðum. Þetta er eiginlega á varpsvæði arnarins. Ég segi fyrir mitt leyti að risavindmylluraforkuframleiðsla á þessu svæði hugnast mér ekki. Ég sé eiginlega ekki fyrir mér þann hrylling vegna þess að við vitum að þetta eru rosalega stór mannvirki og fuglalífi stafar gífurleg hætta af þessu. Ég held að það væri, út af þessum eina fugli, erninum okkar, ástæða til að setja fyrirvara við þetta, og gera þetta ekki.
Ég fór og skoðaði vindmylluna uppi á Hakinu og þetta er svakalegt mannvirki, miklu stærra en maður gerir sér grein fyrir. Ég hef séð svona erlendis, þetta er ekki fallegt og ekki dýravænt. Ég veit ekki hvað á að segja um þetta en mig hryllir við ef þetta verður sett upp í stórum stíl hér á landi og sérstaklega þar sem er mikið fuglalíf.