149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[21:08]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka kærlega þetta svar. Það er nefnilega þannig að það eru ekki aðeins erlendir aðilar sem hafa áhuga á því að setja hér upp svokallaða vindmyllugarða. Það eru líka íslenskir aðilar sem eru nokkuð stórtækir í þessum efnum. Það er alveg ljóst að skynsamir fjárfestar setja ekki endilega svona stórar upphæðir í verkefni ef þau ekki skila arði.

Þá er það seinni pælingin hjá mér: Hvaða reglur munu gilda um orkusöluna? Eru það evrópskar reglur eftir að við erum búin að innleiða allt regluverkið eða verða það íslenskar reglur?