149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[21:09]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Ég verð bara að segja eins og er að miðað við það sem við vitum núna eru það reglur frá ESB sem mundu gilda.

Ef við spáum í raforku: Hvað gerist ef við tengjumst við Evrópu? Það gerist nákvæmlega það sama og gerðist annars staðar. Raforkuverð til heimila á Íslandi mun örugglega tvöfaldast eða meira. Ég veit það bara af reynslunni, t.d. í Danmörku, að þar er fólk meðvitað um að orkusparnaður er innbyggður í kerfið. Þess vegna eru þeir komnir með orkusparandi perur og svoleiðis. Maður kaupir orkusparandi perur, rándýrar, sem eiga að þola að kveikt og slökkt sé á þeim fimm þúsund sinnum, en þær eru yfirleitt ónýtar eftir nokkur skipti. Það er óskiljanlegt fyrirbrigði að við skulum þurfa að kyngja þessu með okkar raforku.