ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætt svar. Af sama meiði langar mig að forvitnast hjá hv. þingmanni um hvort ef við gefum okkur að á einhverjum tímapunkti inni í framtíðinni verði lagður sæstrengur: Skiptir máli hvað afstöðu þingmannsins varðar hvernig eignarhaldi á orkufyrirtækjum innan lands verður háttað á þeim tímapunkti?
Þá er spurningin sem sagt: Skiptir máli hjá hv. þingmanni hvort eignarhaldið verður með sambærilegum hætti og það er í dag, sem sagt milli 80 og 90% á forsvari ríkisins eða opinberra aðila, sveitarfélaga og þar fram eftir götunum, stærst auðvitað Landsvirkjun, og hins vegar sviðsmyndin sem væri auðvelt að teikna upp, að á tímanum fram að lagningu sæstrengs verði uppbrot á einhverjum (Forseti hringir.) fyrirtækjum og eignarhlutur hins opinbera minnki?