149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[21:16]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Það segir sig algjörlega sjálft að ef við tengjumst með sæstreng rafmagni í Evrópu er okkar orkumarkaður farinn frá þjóðinni, þá er þetta bara frjáls markaður alveg eins og með hverja aðra vöru. Það stendur skýrum stöfum í þessu að raforka sé eins og hver önnur vara á markaði. Þá bara gildir markaðslögmálið. Og það sem skelfir mann kannski mest er þessi tilskipun sem er núna komin um útboð á raforkumarkaði. Ef allt þarf að fara í útboð og sá sem býður hæst fær markaðinn, hverjir borga það? Auðvitað almenningur, með hærra og hærra verði. Það segir sig sjálft. Þetta verður bara frumskógur. (Forseti hringir.) Þetta verður skelfing.