ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Nú er það svo að hluta af undanfarandi umræðu var ég fjarverandi við skyldustörf annars staðar. En það er mikið tilhlökkunarefni að koma hingað og taka þátt í þessari umræðu. Mig langar að drepa á nokkur atriði sem bárust frá þessari umræðu þangað sem ég var staddur í síðustu viku. Það voru nokkur uppáhaldsatriði sem festust í minninu og kannski er sá fyrsti leyndardómurinn um týndu fyrirvarana.
Það má segja í sjálfu sér að þetta gæti verið efni í skemmtilega sjónvarpsseríu, að við sæjum Ólaf Darra og einhvern annan með vasaljós að leita að fyrirvörunum hér og hvar, í öllum hornum og skúmaskotum. En svo kemur upp úr kafinu núna að fyrirvararnir, t.d. við þetta þingmál sem við erum að ræða hér, eru einkum tveir. Það er í fyrsta lagi fyrirvari sem er bundinn í reglugerð sem á eftir að setja. Olræt, við ætlum sem sagt að opna hurðina upp á gátt og setja svo reglugerð um dragsúginn, ef hann kemur.
Hitt atriðið, sem varð mér til mikillar ánægju, er vantrú þeirra sem hafa rætt mest um orkupakkann á EES-samningnum. Hér hefur komið fram að þetta sé ekki heppilegt mál til að senda til sameiginlegu nefndarinnar. Ég verð að segja við þetta fólk: Ef það trúir á EES-samninginn, af hverju hefur það þá ekki trú á 102. greininni sem beinlínis mælir fyrir um hvernig álitamál skuli fara fyrir sameiginlegu nefndina þannig að samkomulag megi nást?
En það var líka annað gullkorn sem féll í umræðunni um daginn sem ég hnaut um. Hér steig á stokk þingkona Framsóknarflokksins og sagði, með leyfi forseta:
„Herra forseti. Það er kominn tími til að íslenskir stjórnmálaflokkar stígi fram og geri grein fyrir hvar þeir standi í þessum málum.“
Nú skyldi ég hlæja væri ég ekki dauður, sagði karlinn. Því ef þessi ágæta þingkona hefði hlustað á umræðuna eins og hún hefur verið undanfarnar vikur hefði hún kannski komist að því að það eru nánast allir stjórnmálaflokkar með nokkurn veginn skýra stefnu í þessu máli nema Framsóknarflokkurinn. Stefna hans í þessum málum, eins og svo oft fyrr, minnir á hund sem eltir skottið á sér þangað til hann verður ringlaður. Þá kemur kannski einhver niðurstaða sem enginn skilur og ekki hann sjálfur.
Ég hnaut um það líka í þessari umræðu um daginn að þessi sama ágæta þingkona sagði, með leyfi forseta:
„Við erum framsókn en ekki afturhald.“
Þetta segir mér að þessi ágæta þingkona ætli ekki að bjóða sig fram fyrir Framsóknarflokkinn aftur vegna þess að mikill meiri hluti kjósenda hans er á móti þessum orkupakka. En ekki þar fyrir að mér sé svo sem ekki sama um hvort þessi kona bjóði sig fram til þings aftur næst eða ekki. En mér þykir næsta víst að hún hafi undirstrikað að svo verði ekki.
Það er búið að tala um að þeir sem eru á móti þessum orkupakka séu einangrunarsinnar, þjóðernispopúlistar og kannski ekki eins vel menntaðir og mikið af því góða fólki sem vill endilega koma þessu máli áfram.
Ég ætla að segja það, herra forseti, að ég er afskaplega stoltur af því að vera í hópi þeirra sem eru á móti þessum orkupakka. Ég er rosalega stoltur af því að vera í hópi með landsþekktum þjóðernispopúlistum eins og Ómari Ragnarssyni, Ögmundi Jónassyni, Landssambandi bakarameistara — þeir eru náttúrlega þjóðernispopúlistar ef maður hefur einhvern tímann séð þá, bökuðu meira að segja fullveldisköku í fyrra. [Hlátur í þingsal.] Hversu langt getur þjóðremba gengið? Samtök garðyrkjubænda. Þeir setja tómatana á bakka og skreyta með íslenska fánanum. Þetta eru þjóðernispopúlistar alveg fram í fingurgóma. Ég er mjög stoltur af því að vera í þessum hópi, herra forseti, mjög stoltur.
Það er líka búið að halda því fram að við sem erum á móti þessum pakka séum bara ekki nógu skörp, við séum bara ekki alveg með á því sem er að gerast. Og má ég þá, herra forseti, vitna í Forrest Gump, þar sem hann sagði: „Heimska er það sem heimskur gerir.“ Ég held að við ættum kannski að horfa aðeins til þess í þessu máli.
En það er búin að grípa um sig ótrúleg örvænting í hópi þeirra sem vilja negla þennan pakka í gegn, svona eins og maður segir, á síðustu metrunum. Menn drógu hingað heim ágætan, erlendan sérfræðing sem er örugglega Íslandsvinur, því að hann tók þátt í að dæma okkur í hag í Icesave-málinu. En það er nú einu sinni þannig, herra forseti, að það skiptir ekki máli hvort maður hefur unnið 5:0 í fyrra — það skiptir máli hvað maður er að gera núna. Þessi ágæti maður virðist hafa verið fenginn hingað til þess að hræða okkur. Og hann sagði: Evrópusambandið verður örugglega alveg brjálað. Bíddu, kemur það einhverjum á óvart? Nei, ekki endilega. Ég man ekki til þess í þann tíma sem ég er búinn að fylgjast með pólitík, og hann er nú orðinn býsna langur, að Evrópusambandið hafi í einhverju efni sýnt eitthvað annað þegar þeir etja kappi við þá sem eru þeim ekki nógu fylgispakir. Ég man ekki til þess að Evrópusambandið hafi nokkru sinni sýnt einhvern svokallaðan sveigjanleika, komið til móts við sjónarmið annarra. Aldeilis ekki.
Það kom líka fram áðan í máli hv. formanns utanríkismálanefndar að fáir sérfræðingar gerðu athugasemdir við þá málsmeðferð sem hér er uppi. Það kann að vera, en það eru líka svo fáir sérfræðingar sem höfðu aðra skoðun sem komust að fyrir nefndinni. Á seinni dögum meðferðar í utanríkismálanefnd lá fyrir allnokkur nafnalisti yfir fólk sem áhugi var á að kæmi fyrir nefndina. Nei, það var of seint. Það var ekki hægt. Þannig að auðvitað er hægt að búa þannig um hnútana að sérfræðiálitin sem berast séu svona frekar hagfelld og þau sem séu ekki hagstæð séu fá. Það er enginn vandi.
Það er engin launung á því að ég man eftir því að þegar ég kom í pólitík fyrst í kringum árið 2013 voru mönnum að verða eða kannski orðin ljós áhrif annars orkupakkans, þ.e. þess sem var tekin að fullu inn árið 2008, ef ég man rétt, þegar Sjálfstæðisflokkur og Samfylking réðu hér málum. Það varð m.a. til þess að hér var skipt upp orkufyrirtækjum í framleiðslu og dreifingarhluta. Við beygðum okkur aftur á bak til að uppfylla þetta fyrir Evrópusambandið eins og best við gátum og hefðum örugglega, ef við hefðum verið hundar í hringleikahúsi, fengið nammi í verðlaun fyrir það hvað við vorum fylgispök við þennan pakka og gengum miklu lengra heldur en við hefðum þurft að gera.
Það breytir hins vegar ekki því að núna þegar þessi þriðji orkupakki lítur dagsins ljós er kominn tími til að staldra við. Við höfum séð það hér í dag, það sást í umræðunni hér í síðustu viku, bæði um dag og nótt, að þetta mál er ekki fullrætt. Það eru enn angar, og má ég segja „núansar“, herra forseti, sem eru óræddir og óskýrir og sem við þurfum að fá botn í.
Og talandi um sérfræðinga sem komu bæði fyrir utanríkismálanefnd og skrifuðu greinar og höfðu sig í frammi, minnist ég sérstaklega eins sem talaði mjög fyrir þessum orkupakka. Hann kastaði af sér dómaraskikkjunni og fræðimannskuflinum og fór í bullandi pólitík um málið. Það er náttúrlega enginn vandi að gera slíkt. En það er ekki mikil fræðimennska, ekki mikil fagmennska.
Þannig að ég held að þess vegna, þótt ekki sé nema einn fræðimaður sem kemur fram og hefur efasemdir um að þessi gerningur t.d. standist stjórnarskrá að fullu, ekki nema einn sem telur að í gerningnum felist valdframsal af áður óþekktri stærð, sé það út af fyrir sig alveg nóg, t.d. fyrir þann sem hér stendur. Það er alveg nóg til þess að segja: Stöldrum við. Könnum þetta betur. Förum yfir þetta. Veltum þessu aðeins fyrir okkur. Reynum að fá þá sem trúa á EES-samninginn til að fá trú á 102. gr. líka. Fá kjark til að senda þetta mál til baka, gera um það samning og innleiða svo þennan pakka á þeim forsendum sem eru okkur Íslendingum hagfelldir.
Og menn segja: Halda menn að EES-samningurinn sé eitthvert hlaðborð þar sem hægt er að velja úr? Nei. Við höldum ekki. Við trúum hins vegar að samningur sé akkúrat það, hann sé samningur, að EES-samningurinn sé samkomulag, ekki einræða Evrópusambandsins heldur opinn samningur þar sem aðilar, í þessu tilfelli þjóðir, mætast á jafnréttisgrundvelli, ræða mál til lykta og komast að niðurstöðu sem báðir geta unað við. Og það er það sem við þurfum að gera í þessu máli.
Það er sagt: Þetta mál hentar ekki til að senda til nefndarinnar. Ég hugsa með mér: Ja, bíddu, er þetta mál of stórt eða merkilegt eða er það of flókið, eigum við að taka eitthvað minna? Ef það væri náttúrlega á forræði sveitarfélaganna hefði mér dottið í hug fundahald í þéttbýli. Við gætum kannski sent það til sameiginlegu EES-nefndarinnar og tékkað á því hvort við mundum ná samningi þar um.
Þetta, herra forseti, eru ekki rök í þessu máli. Það eru ekki rök að þetta mál henti ekki til að senda og láta reyna á hvort EES-samningurinn er samningur, hvort hann er samkomulag jafningja, eða einstefnuakstursgata fyrir Evrópusambandið til að valta yfir allt sem fyrir því verður þegar því líkar best.
Í morgun birtist í Fréttablaðinu opnuauglýsing þar sem stór hópur ungs fólks kom fram og var, eins og einn ágætur þingmaður orðaði það hér í morgun: Óhrætt við að sýna sitt andlit. Gott. Það sem þetta ágæta unga fólk hafði fram að færa gæti ég í sjálfu sér ekki verið meira sammála um, þ.e. að efla erlend samskipti þjóðarinnar, algjörlega, og reyna á EES-samninginn. Það er akkúrat það sem við viljum gera.
En talandi um fólk sem óhrætt sýnir andlitið á sér var ég staddur hér úti á vellinum á laugardaginn með hópi af fólki. Hann var ekki mjög fjölmennur, en þetta var líka fólk sem er ekki í daglegur gestir í mótmælum á Austurvelli. Þetta er fólk sem kemur nú fram vegna þess að því er nóg boðið. Þetta fólk var óhrætt við að sýna á sér andlitið, að sjálfsögðu. Nema hvað? Þunginn á þeim fundi og þunginn í þeirri umræðu sem þar fór fram, þunginn í öllum þeim skilaboðum sem maður hefur fengið, bæði á undan þessum fundi og eftir hann og úr þessum hópi, er þannig að það skín svo í gegn að fólki er ekki sama. Okkur er ekki sama. Okkur er ekki sama um stjórnarskrána okkar og hvernig um hana er gengið. Okkur er ekki sama um orkuauðlindirnar okkar. Og okkur er ekki sama um börnin okkar og barnabörnin, þeirra framtíð. Það er þetta sem veldur því að við komum saman, t.d. úti á Austurvelli, kannski ekkert ótrúlega mörg.
En þá ætla ég að vitna í eitt og mig langar að segja smá sögu.
Það var í kringum árið 1988, líklega, að einn maður mætti kvöld eitt við Nikolai-kirkjuna í Leipzig með kyndil og stóð þar þögull. Næsta kvöld voru þeir tveir. Þá kom sá tími að þeir voru fimm. Þeir urðu tíu. Þeir urðu 100. Þeir urðu 1.000 og þeir urðu 10.000. þúsund. Þegar þessi fjöldi var farinn að koma þarna saman kvöld eftir kvöld sáu menn að við svo búið mátti ekki standa. Þetta er ein af ástæðum þess að Berlínarmúrinn hrundi.
Það vill svo til að sá sem hér stendur hefur hitt einn af þeim sem tóku þátt í þessu. Ég sagði við hann: Þetta hefur ekki verið hættulaust. Hann sagði: Nei, en það varð að gera það.
Það sem við erum að gera núna, orðræðan sem við höldum uppi, hún er ekki hættuleg fyrir okkur, en við verðum að gera þetta. Við verðum að taka þessa orðræðu. Við verðum að stíga fram. Það skiptir engu máli hvort við erum eitt eða fimm eða 10.000, við verður samt að gera þetta. Og það skiptir engu máli þó að það sé fullt af fólki í öðrum flokkum, meiri hluti þeirra sem hér sitja og heyrir ekki það sem berst hingað inn, sem hlustar ekki á það sem gerist hérna fyrir utan, það breytir engu um það að við munum gera það. Og það breytir engu hvort menn líti niður á okkur og kalli okkur öllum illum nöfnum eða einhverju sem þeim finnst vera ill nöfn, sem er náttúrlega venjuleg aðferð rökþrota fólks, þegar rökin þverra þá grípa menn til þess að hafa uppi merkimiðapólitík — sem er ómerkileg pólitík — og reyna að merkja þá sem eru á öndverðum meiði við þá sjálfa.
Svo vill til að ég hitti um daginn aldraðan lögspeking, mjög virtan, á fundi Lögmannafélagsins um einmitt þetta mál. Þar voru menn búnir að takast á um hvort það væri fýsilegt eða æskilegt að senda þennan pakka til baka í sameiginlegu EES-nefndina. Þessi ágæti maður, með áratuga reynslu af dómarastörfum og lögmannsstörfum, sagði: Það var nógu slæmt að við skyldum samþykkja númer eitt og tvö. Nú er kominn tími til að stíga niður fæti. Nú er kominn tími til að segja: Nei, við ætlum ekki lengra að sinni. Nú er kominn tími til þess að taka á sig rögg, taka þennan pakka, senda hann í sameiginlegu nefndina og fá þaðan hagfellda lausn fyrir okkur.
Við erum farin að sjá glitta í númer fjögur. Við vitum alveg hvað þar er að gerast. Á þeim stutta tíma sem ég tók þátt í þessari umræðu um daginn var alltaf verið að segja eitthvað á borð við: Ja, þið eruð alltaf að tala um sæstreng. Ég get upplýst það, herra forseti, að ég held að ég hafi bara alls ekki talað um sæstreng í þessari umræðu. Bara ekki nokkurn skapaðan hlut, enda snýst þetta mál ekki um sæstreng eða ekki sæstreng. Þetta mál snýst um allt annað.
Í Kjarnanum sagði ágætur lögspekingur um daginn:
„Aðferðin sem ríkisstjórnin er að fara í þessu máli hefur í för með sér lagalega óvissu.“
Sú leið sem við erum að leggja til hefur í för með sér pólitíska óvissu.
Olræt. Er það ekki okkar starf að eiga við pólitíska óvissu? Er það ekki það sem við gerum dagsdaglega? En við búum ekki við lagalega óvissu og við látum ekki fólkið í landinu búa við lagalega óvissu, alls ekki þegar svona hagsmunir eru í húfi.
En pólitíska óvissu? Við höfum gengið í gegnum pólitíska óvissu nánast á hverju ári allan tímann sem ég man eftir mér og það er nú orðinn dágóður tími,
Þannig að ég segi: Finnum hjá okkur kjark til þess að senda þetta mál til sameiginlegu EES-nefndarinnar til að fá þar hagfelldari niðurstöðu.