ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland kærlega fyrir. Það er nefnilega alveg rétt að það er hægt að týna sér í þessari umræðu og við erum rétt að byrja nóttina, vil ég segja.
Þar sem ég veit að hv. þm. Ingu Sæland er mjög umhugað um þá sem höllum fæti standa í okkar samfélagi velti ég fyrir mér að nú er það sýnt að þegar við innleiddum orkupakka tvö hækkaði raforkuverð á landsbyggðinni. Við höfum heyrt hér ræður sérstaklega sem snúa að Suðurnesjum, ef ég man það rétt.
Þetta er allt með skipun að utan og þar með hækkaði raforkureikningurinn. Þá velti ég fyrir mér hvort það sé ekki einsýnt að það sama muni gerast — þá fyrir landið allt, hreinlega — þegar og ef við samþykkjum orkupakka þrjú.
Í þessu sambandi er ég kannski að huga að þeim sem höllum fæti standa þar sem þeir hafa ekki úr svo miklu að moða. Allt þetta mun skipta máli. Þannig að ég velti þessu upp, hvort ekki sé einsýnt að orkuverð muni hækka.