ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni fyrir spurninguna. Jú, þetta er alveg rétt, þetta er nákvæmlega það sem við horfumst í augu við bara núna með t.d. Hellisheiðarvirkjun. Þegar og ef hennar umboði lýkur má bara bjóða það út og það verður í rauninni samkvæmt samningi. Það verður í rauninni hæstbjóðandi sem getur tekið yfir.
Hv. þingmaður man nú eftir málinu þar sem ríkið greiddi Högum 3 milljarða í skaðabætur vegna þess að talið var að það væri verið að hamla ákveðnum vöruskiptum og frjálsu flæði vöru, samanber EES-samninginn. Það gildir nákvæmlega það sama núna þegar við horfum á HS Orku sem horfir á Landsvirkjun, sem er risastórt fyrirtæki í ríkiseigu. Það er ekki spurningin um hvort ég tel, hv. þingmaður, að það sé bara hvenær HS Orka og fulltrúar þar láta reyna á það, einmitt fyrir EFTA, hvernig það stenst samninginn að við skulum eiga risastóra Landsvirkjun sem er með yfir 85% af hlutdeildinni á markaðnum. Þannig að ég sé það til framtíðar líka. Þetta stefnir allt í það.
Það er ekki hægt að horfa fram hjá þeim sérfræðingum sem eru í rauninni líka að berjast gegn innleiðingu þriðja orkupakkans og vita og eru að draga fram ekki bara sjónarmið heldur ýmsar staðreyndir sem þeir bera á borð og dapurt að skuli vera svona harðlokað augunum fyrir því. Bara vegna þess að fólk hér, margir hverjir hv. þingmenn, eru einhvern veginn fastir í þriðja orkupakkanum og virðast ekki geta horft pínulítið lengra og líta ekki á raunverulegt gildi þessa fjórfrelsis sem samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið hefur sett okkur í. Ég hef þar á meðal talað um ... Í seinna andsvari kem ég með það.