ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Mig langar að hvetja hv. þingmann til að koma að frekar í aðra ræðu til að halda áfram með þetta mál því að ég er með aðra spurningu til hv. þingmanns fyrir seinna andsvarið. Nú eru þannig að orkupakki fjögur er orðinn til. Við höfum séð fréttir af því að það sé búið að kynna hann fyrir norskum stjórnvöldum. Það er líka þannig að í Noregi er búið að skrifa skýrslu um orkupakka fjögur.
Mig langar í fyrsta lagi að spyrja þingmann hvort hún muni eftir því að orkupakki fjögur hafi á einhvern hátt verið kynntur, eða innihald hans kynnt, fyrir utanríkismálanefnd eða annarri nefnd sem hv. þingmaður kann að sitja í. Í skýrslunni sem unnin var í Noregi og er fjallað um í Bændablaðinu segir, með leyfi forseta, þ.e. í fréttinni:
„Í reglugerðinni er mælt fyrir um frekari ákvæði sem skiptir máli fyrir viðskipti yfir landamæri. Markmiðið er að tryggja meginregluna um vel samþættan raforkumarkað.“
Að raforkumarkaðurinn sé vel samþættur allur saman.
„Þetta þýðir að allir þátttakendur í sameiginlega orkuneti ESB verða að hafa jafnan aðgang að mörkuðum.“
Væntanlega þeir sem eru tengdir eða munu tengjast.
„Enn fremur er almennt ákvæði um flutningsgetu og flöskuhálsstjórnun.“
Hvað það þýðir veit ég ekki og hef ekki getað fundið út úr.
„Þar segir m.a. að innflutningur og útflutningur á raforku megi ekki vera takmarkaður af innlendum þáttum.“
Ég velti fyrir mér hvort það sé ekki full ástæða til að fá nánari útlistun á orkupakka fjögur áður en haldið er áfram með þetta mál hér. Því að ef það er þannig að það er enn þá verið að veita þessari ACER-stofnun og eftirlitsstofnunum Evrópu aukið vald til að ráðskast með raforkumarkaðinn er spurning hvort við þurfum ekki einmitt núna að fá undanþáguna sem höfum talað svo mikið um til þess að lenda ekki hugsanlega í því að þurfa að bregðast við einhverri kröfu frá Evrópusambandinu um að við séum að takmarka útflutning.