149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:37]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir ræðuna. EES-samningurinn hefur verið okkur býsna mikilvægur í 25 ár eða svo. Hann hefur vissulega fært okkur, mundi ég segja, betri löggjöf á mörgum sviðum. Það skal þó að hafa í huga að löggjöf getum við tekið upp og apað eftir, ef okkur sýnist svo, ef okkur finnst hún vera það góð. Það sem EES-samningurinn hefur líka vitanlega gert er að leggja ákveðnar skyldur á herðar Íslandi. Við þurfum að arta þennan samning og við þurfum að uppfylla ákveðnar skyldur.

Nú innleiddi Ísland orkutilskipanir eitt og tvö og með því hófst það ferli sem við sjáum í dag. Smám saman er verið að innleiða frekari tilskipanir eða frekari breytingar á löggjöf Evrópusambandsins varðandi orkumarkað þar sem Evrópusambandið hefur það augljóslega að markmiði að búa til einn samræmdan, samfelldan orkumarkað. Hefur það komið fram oftar en einu sinni að Evrópusambandið sem slíkt er ófeimið við að beita alls kyns ráðum til að ná fram markmiðum sínum, m.a. gegn þjóðríkjunum sem mynda þetta samband.

Fyrir nokkru, eða réttara sagt held ég að það hafi verið í mars síðastliðnum, höfðaði Evrópusambandið samningsbrotamál gegn nokkrum ríkjum fyrir að hafa ekki staðið við útboðsskilyrði varðandi nýtingarrétt vatnsfalla og tilheyrandi vatnsaflsvirkjana. Nú velti ég fyrir mér, þar sem Íslandi hefur líka borist tilskipun frá Evrópusambandinu um að við þurfum að bjóða út þessa nýtingu eins og Evrópusambandið ætlast til af þessum ríkjum: Hefur þingmaðurinn engar áhyggjur af því að við séum að taka enn eitt skrefið með þessari innleiðingu í að ganga að fullu inn í þennan orkumarkað?