149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:42]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Forseti. Þakka þingmanninum fyrir svarið. Nú er það þannig að samningsbrotamálið sem ég vitnaði til áðan og réttilega er fjallað um í Morgunblaðinu byggir annars vegar á þjónustutilskipun frá 2009 og hins vegar reglugerð um opinber innkaup frá 2014. Þessar gerðir hafa báðar verið innleiddar í löggjöf hér á Íslandi, 2011 og 2016.

Við höfum séð og heyrt að einhvers konar yfirlýsing hafi borist frá orkumálastjóra Evrópusambandsins um að aðstæður á Íslandi séu þannig að það geti talist undanþegið ákveðnum hluta af þessum orkupakka öllum saman, þ.e. að það vanti tenginguna við landið út af sæstreng. En þjónustutilskipunin? Kannast þingmaðurinn við að einhver hafi flutt okkur þær fréttir að Evrópusambandið líti svo á að við séum undanþegin þjónustutilskipuninni þegar kemur að orkumálum eða öðrum tilskipunum sem fjalla um frjálst flæði vöru eða einhvers slíks?

Ástæðan fyrir því að ég spyr að þessu er að eins og þingmaðurinn benti réttilega á er langt síðan að orka var skilgreind eins og hver önnur vara sem ætti að nýta á sama hátt og flokkuð sem slík. Því hljótum við að velta fyrir okkur hvort þessar tilskipanir sem hér er vitnað til séu í raun bara toppurinn á ísjakanum sem við sjáum og eigum von á í framtíðinni — þegar Evrópusambandið fer að láta á það reyna að allir sem hafa innleitt þessar tilskipanir, og nota bene við erum að fara að innleiða þessa tilskipun Evrópusambandsins, nái frumvörpin og þingsályktunin fram að ganga — og getum þá átt á hættu að Evrópusambandið fari að hlutast til um okkar málefni með þessum hætti ítrekað.