ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir. Það er alveg rétt að það er búið að ræða dálítið þröngt um þessa túlkun á samningnum og þá sér í lagi þá þingsályktunartillögu sem hér um ræðir. Það hefur ekkert verið komið inn á það sem kallar á lagabreytingar í kjölfarið. Við erum meira að segja farin að sjá á samráðsgátt stjórnvalda hugmyndir að stjórnarskrárbreytingum sem snúa að náttúruvernd.
Það er rétt að það er efnislítið sem hefur komið fram. Það er eins og að það skorti málefnaleg rök. Ég blæs á pælingar um að andstæðingar séu einangrunarsinnar, jafnvel nasistar, og ég veit ekki hvað og hvað. Það eina sem hefur verið rætt um sem má segja að gætu verið rök í málinu, efnisleg rök, eru þessir fyrirvarar, sem er svo hvergi að finna. Því er haldið fram að þá sé að finna í yfirlýsingu EFTA-ríkjanna, þá sé að finna hjá íslenskum stjórnvöldum og þá sé að finna í þessari greinargerð.
En merkilegt nokk eru þessar þrjár útgáfur bara ekkert samhljóma. Þannig að það er ekki efnislega farið á dýptina í málinu vegna þess að fólk ætlar að koma þessu máli í gegn. Og þegar svo er, þá er gjarnan farið í manninn, eins og var lýst hér áðan. Það er bara vegna þess að fólk hefur ekki nein gáfuleg rök og getur ekki staðið með því sem það er þó að fara að hefja þessa vegferð með.