149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:28]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er vitanlega augljóst að ef við stöndum frammi fyrir því að arðsemiskrafa í orkuvinnslu og orkusölu verði aukin eða hækki vegna þess að einkavæðing eigi sér stað eða að nýtingarsamningarnir séu boðnir upp — en greiða þarf hærra verð fyrir nýtingarsamningana — eins og fjallað er um í þeim dæmum sem við hv. þingmaður nefndum hér, þá er augljóst að það skerðir samkeppnishæfni landsins. Hvort sem það er í ylrækt eða ræktun eða framleiðslu á matvælum eða iðnaðarvörum eða einhverju slíku — um leið og kostnaður fyrirtækjanna, sama hvað þau eru stór, sama hvað þau heita eða í hvaða atvinnugreinum þau eru, verður hærri þá breytist samkeppnisstaðan.

Við eigum bara ekkert, Íslendingar, að vera að taka einhverja sénsa með það. Við eigum ekki að vera að taka þann séns að aðrir en við sjálf getum ákveðið hvernig við viljum nýta eða selja raforkuna sem hér er. Dæmið sem ég nefndi áðan, um samningsbrotamál gegn Evrópuríkjunum og kröfuna sem var gerð á nýtingarsamninga á Íslandi, er merki um að það eru aðilar, aðrir en Íslendingar, að sýsla með eða hafa áhrif á það hvernig við förum með orkuna okkar, ekki hvort við eigum auðlindina heldur hvernig við förum með hana. Það er stóra málið.

Ef við sjáum fram á að samruninn við hinn evrópska orkumarkað verði meiri og meiri verðum við að gá að okkur. Kröfurnar þar eru meiri einsleitni, meira flæði milli landa, einn markaður þar sem menn geta valið og keypt orku þvers og kruss milli landa eða ríkja. Reyndar eru menn (Forseti hringir.) hættir að tala um lönd þarna, mér skilst að talað sé um svæði.