ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Við höfum flest eytt nokkrum tíma undanfarið í að fletta upp á netinu og lesa hvað vakir fyrir Evrópusambandinu og ríkjum þess, hvaða markmið eru uppi varðandi orkustefnu og slíkt. Þegar við förum í gegnum orkustefnu Evrópusambandsins eða undirstofnana er þetta allt það sama, menn ætla að reyna að bæta orkunýtingu og gera markaðinn einsleitan, þ.e. að öll ríkin geti setið við sama borð og keypt ódýra orku hvar sem þau vilja — og annað, það má ekki hindra að orka sé flutt yfir landamæri, það er annað sem kemur klárlega fram og m.a. í norskri skýrslu um fjórða orkupakkann.
Það sem við stöndum frammi fyrir er: Já, markmið Evrópusambandsins er klárlega í þá átt að gera orkuna að einsleitri vöru sem geti flætt um Evrópska efnahagssvæðið í allar áttir og hafa stjórn á því hvernig varan er flutt, á hvaða verði og hvernig hún er seld.