ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni fyrir ágæta ræðu. Mér þykir alltumlykjandi í ræðu þingmannsins sú hætta sem er yfirvofandi með þeirri innleiðingu sem við horfum til núna, að við séum að missa stjórn, meira en orðið er með orkupakka eitt og tvö, á orkumarkaðsmálunum almennt. Í því samhengi horfi ég til þess að það má segja sem svo að það geri lítið fyrir okkur að hafa einhverja mögulega stjórn — fyrir þá sem hafa tiltrú á hinum meintu fyrirvörum — á tímasetningum lagningar sæstrengs ef við erum búnir að missa stjórn á orkumarkaðsmálunum.
Það er undirliggjandi ótti og sá ótti held ég að verði ágengari eftir því sem menn lesa sér betur til í gögnum þriðja orkupakkans. Það er þarna stigsmunur á. Í fyrsta lagi eru auðvitað ákveðin atriði sem hafa snert þennan markað í fyrsta og öðrum orkupakkanum, síðan horfðum við núna á innleiðingu þriðja orkupakkans og tímabilið frá innleiðingu til lagningar sæstrengs og svo aftur frá lagningu sæstrengs og áfram. Þá er upplifun margra að ansi stór hluti orkumarkaðsmálanna sé úr okkar höndum hvað endanlega ákvörðun varðar.
Mér þætti áhugavert að heyra út frá fyrri reynslu af störfum hv. þingmanns hvernig það horfir við honum að stjórn (Forseti hringir.) orkumarkaðsmála fasist frá okkur í einni salamísneið í einu.