149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:35]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alveg ljóst að við erum að innleiða, verði þetta að veruleika, burt séð frá fyrirvara til heimabrúks, þessar gerðir Evrópusambandsins í íslenskan rétt. Ef það er ekki gert með ákveðnum og réttum hætti eru líkur á því að höfðað verði mál gegn landinu. Það er alveg ljóst. Við erum smám saman að breyta umsýslu okkar með orkumálin yfir í sameiginleg evrópska umsýslu og gefa smám saman frá okkur völd eða yfirráð, eða hvað við köllum það, áhrif á orkumarkað okkar.

Já, við erum að taka ákveðið skref í dag, ef tillagan verður samþykkt. Þótt menn geti kannski fært rök fyrir því að það sé lítið skref þá erum við að breyta Orkustofnun til samræmis við ákveðnar kröfur sem koma í gegnum þennan orkupakka. Það er alveg ljóst að verið er að gera það. Það er alltaf verið að taka þetta skref.

Ég nefndi sérstaklega í fyrri ræðu í dag að ég hef miklar áhyggjur ef við setjum ekki niður hælana núna og segjum að það sé ekki fyrir Ísland að innleiða þessa pakka áfram, að nú verðum við að segja stopp því að við treystum okkur ekki til að verða hluti af hinum sameiginlega, stóra evrópska orkumarkaði. Við ættum að gera það núna vegna þess að við vitum hvað er í pakkanum. Fyrir nokkrum árum var alltaf talað um að kíkja í pakkann en núna við vitum algerlega hvað er í boði. Það sem er í boði eftir að hafa reynt að fá undanþágur er ekki ásættanlegt fyrir Ísland eins og staðan er í dag. Þess vegna eigum við að vísa málinu til sameiginlegu EES-nefndarinnar. En Evrópusambandið er klárlega á þeirri vegferð að reyna að hafa öll ríki EES-svæðisins undir sameiginlegum hatti, á sameiginlegum markaðir með sameiginlegar reglur.