149. löggjafarþing — 106. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[00:03]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þetta er mjög áhugaverð spurning og kannski ekki einhlítt svar við henni hér og nú. Hún þarfnast náttúrlega rannsóknar, að sjálfsögðu, vegna þess að auðvitað skyldi maður ætla að það væri í anda lýðræðis þegar svona mikill meiri hluti þeirra sem koma og gefa álit sitt í svo stóru máli að nefndin hlustaði á þessa álitsgjafa.

En það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að það virðist vera algerlega horft fram hjá því hversu stórt hlutfall þeirra sem komu fyrir nefndina hefur áhyggjur af þessu máli. Það eru kannski einhverjir hagsmunir þarna á bak við sem maður áttar sig ekki alveg á, ég skal ekki fullyrða um það, en auðvitað vekur það spurningar. Þetta er náttúrlega eitthvað sem formaður nefndarinnar þyrfti að svara, hvers vegna sé horft fram hjá því að svo mikill meiri hluti gesta hafi haft áhyggjur af málinu.

En það er líka annað í þessu sem hv. þingmaður kom einmitt inn á: Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni um að við erum mjög mikilvæg í huga Evrópusambandsins. Þess vegna held ég að allt sem heitir hræðsluáróður, sem birtist m.a. í stórri auglýsingu í einu dagblaðanna eða tveim blöðum í dag um að hér sé verið að setja EES-samninginn í uppnám o.s.frv., ég held þetta sé ekkert annað en hræðsluáróður. Við erum mjög mikilvæg Evrópusambandinu þegar kemur að orkumálum. Það er hér hrein orka sem er afar dýrmæt í hugum Evrópusambandsins, orkuskipti fram undan o.s.frv. Þannig að ég mundi segja bara í raun og veru að það væri svona hálfbarnaleg framsetning að halda því fram að hér fari allt í uppnám og (Forseti hringir.) Evrópusambandið vilji bara losna við okkur. Það er svo sannarlega ekki með þeim hætti.