ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Þetta er afar athyglisverð hugleiðing hjá hv. þingmanni, mjög svo. Í ljósi sögunnar — við þurfum ekki annað en að horfa í átt til kjötmálsins — sjáum við að svona fyrirvarar halda ekki. Það er í raun og veru enginn munur þarna á. Við setjum, eins og ég sagði hér áðan, lögin um frystiskylduna, teljum að við séum alveg komnir fyrir vind og þurfum ekki hafa neinar áhyggjur af málinu — nákvæmlega það sama og er með þann lagalega fyrirvara sem á að fara að setja hér um að ekki verði lagður sæstrengur nema með leyfi Alþingis. Það er enginn munur á þessu.
Við höfum bara séð það að svona fyrirvarar halda ekki. Evrópusambandið vill ekki svona fyrirvara. Einu fyrirvararnir sem halda eru þessir lögformlegu sem fara í gegnum samninginn. Það er leiðin sem á að fara, að nota 102. gr. í EES-samningnum til að fá varanlega undanþágu. Annað kemur ekki til með að halda. Við vitum það. Við sjáum það. Við höfum reynt það. Það sama gildir í þessum efnum.
Þannig að ég segi eins og er, (Forseti hringir.) hv. þingmaður, ég held að þetta sé bara mjög vel athugað hjá þér.