ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður man eflaust eftir minnisblaði sem var lagt fyrir utanríkismálanefnd fyrir nokkru — þetta er reyndar gamalt minnisblaðið en var rifjað upp — þar sem fram kemur að ein af rökum Evrópusambandsins fyrir því að neita Íslandi um undanþágur í þeim viðræðum sem áttu sér stað fyrir nokkrum árum, undanþágur frá orkupakka þrjú, voru þau að þar sem Ísland hefði innleitt orkupakka tvö svo glæsilega og umfram skyldur að ekki væri ástæða til að veita undanþágur frá orkupakka þrjú. Þeir bættu reyndar við að þó Ísland væri einangrað kerfi væri framleidd svo mikil orka á Íslandi að það teldist ekki lítið einangrað kerfi lengur.
Þetta er dæmi um að þegar maður er búinn að rétta litlafingurinn hverfur öll höndin. Þegar menn eru byrjaðir að kyngja salami-pylsunni stoppa menn ekki. Það er það sem ég hef mestar áhyggjur af við orkupakka þrjú, að það skref sem við erum að stíga núna muni leiða af sér annað skref o.s.frv. Á endanum eru yfirráðin yfir orkuauðlindum okkar og nýtingu þeirra komin annað.