ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Hér hef ég allar umsagnir sem bárust utanríkismálanefnd í þessu stóra og mikilvæga máli. Þetta er þykk og mikil bók. Hér er athyglisverð umsögn sem fyrirtæki sendir inn sem heitir Valorka. Ef ég vitna aðeins í þessa umsögn, með leyfi forseta, segir hér:
„Umrætt þingmál um „þriðja orkupakka ESB“ er þess eðlis að það á alls ekki við hérlendis. Stjórn á orkuauðlindum okkar er alfarið íslenskt innanríkismál og öll reglusetning þeim viðkomandi á að vera að frumkvæði íslendinga og samkvæmt þörfum Íslendinga.“
Síðan segir hér áfram:
„Valorka hvetur alþingismenn til að hafna þessum orkupakka algerlega. […] Landsvirkjun er allsráðandi risi á íslenskum orkumarkaði, sem hefur gríðarleg ítök í stjórnkerfi landsins. […] Landsvirkjun hefur ekki farið dult með þá skoðun sína að samþykkja beri alla orkupakka ESB og búa í haginn fyrir lagningu sæstrengs. […] Til að reyna að ná sáttum leggur ríkisstjórnin fram lög sem segja að ekki verði lagður sæstrengur nema með samþykki Alþingis.“
Síðan segir hér áfram, með leyfi forseta:
„Orkumál heimsins munu, vegna fyrirsjáanlegra orkuskipta, breytast hraðar á næstu árum en dæmi eru um síðan í árdögum iðnbyltingarinnar. Því er núna sérstök ástæða til þess fyrir sjálfstæða þjóð að gæta ýtrustu varkárni og halda vel utan að sjálfstæði í sínum orkumálum.“
Hér segir í þessari umsögn, og þá er verið að vitna í lögin um að sæstrengur verði ekki lagður nema með samþykki Alþingis: (Forseti hringir.)
„Hins vegar munu þessi lög verða afnumin um leið og Landsvirkjun telur sér henta að selja orku um sæstreng.“ (Forseti hringir.)
Ég vil fá álit hv. þingmanns á þessu, að lögin (Forseti hringir.) verði afnumin þegar Landsvirkjun telur henta fyrirtækinu.
(Forseti (BHar): Forseti vill minna hv. þingmenn aftur á að virða tímamörkin. )