ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir ræðuna. Það er mikilvægt að horfa á hlutina í heild og taka það sem við vitum um framtíðina með í reikninginn eins og hv. þingmaður gerði hér í umfjöllun um fjórða orkupakkann — og jafnvel lengra. Það sem mig langar hins vegar að spyrja þingmanninn út í er hvort það sé rétt skilið hjá mér, því að mér finnst eins og það hafi kannski ekki komið nógu vel fram í umræðunni í dag, að hvort sem við tengjumst Evrópu eða ekki með rafstreng, með snúru eða einhvern veginn, erum við að innleiða orkupakka þrjú. Við erum að innleiða það sem er í þessum gerðum með því að fara þá leið sem við erum að fara núna.
Strengurinn er eitt en þau áhrif sem verða af orkupakkanum eða þeim gerðum sem á að innleiða er að við erum að taka allan þennan bálk inn í íslenskan rétt með því að fara þessa leið sem við erum að fara núna og fá ekki undanþágu. Við erum að stíga skref í átt að meiri samfellu og samleitni markaðarins. Sem leiðir mig þá að þeirri hugsun sem hv. þingmaður kom inn á varðandi þá skýrslu sem unnin var í Noregi, hvort það sé þá ekki eðlilegt, í ljósi þess að við erum að innleiða þetta með húð og hári, að spá líka fyrir um það og reyna að horfa til þess hvaða áhrif fjórði orkupakkinn hafi, sem virðist vera kominn á flug einhvers staðar í Noregi, og maður heyrir að hann sé hjá einhverjum hagsmunaaðilum hér á Íslandi líka til kynningar. Hvaða áhrif hefur hann þegar hann leggst ofan á orkupakka þrjú? Hvað erum við þá búin að stíg stórt skref inn á evrópska orkumarkaðinn?