149. löggjafarþing — 106. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[00:51]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Hvaða skref höfum við stigið með innleiðingu orkupakka þrjú gagnvart þeim orkupökkum sem á eftir koma? Ég verð að segja að miðað við þær upplýsingar sem ég hef, og þær eru kannski ekki fullnægjandi, sé ég ekki betur en að með innleiðingu orkupakka þrjú séum við kannski að stíga stærsta skrefið af þeim öllum, þ.e. við samþykkjum með orkupakka þrjú að við séum hluti af innri markaði Evrópusambandsins, orkumarkaði Evrópusambandsins, hvort sem við erum tengd eður ei. Það sem á eftir kemur mun eingöngu auka þrýstinginn á tengingu og samræmingu raforkuverðs og að við innleiðum enn fleiri gerðir.

Eins og ég kom lítillega inn á í ræðu minni áðan: Með þessari innleiðingu verður erfiðara og erfiðara að spyrna við fótum. Ef við viljum raunverulega hafa forræðið á þessu, ef við viljum ekki framselja ríkisvaldið eins og margoft hefur komið fram hjá öllum sem hafa haldið ræður hér, hvort sem þeir hafa verið fylgjandi eða á móti, ættum við að setja niður hælana og hafna þessari innleiðingu og tryggja að ef sæstrengur verður lagður verði það á okkar forsendum og á okkar forsendum eingöngu; að við getum tekið ákvörðun um það þá og þegar, ef við teljum að það verði Íslandi til hagsbóta að selja orku um sæstreng getum við gert það í framtíðinni en ekki á forsendum annarra Evrópuríkja sem nauðsynlega þurfa meira af hreinni orku til að fóðra sinn iðnað eða sína framleiðslu.