ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti. Ástæðan fyrir því að ég velti þessu upp við hv. þingmann er sú staðreynd að við förum nú þegar eftir ákveðnum reglum sem Evrópusambandið setur og við innleiðum þegar kemur að því hvernig við sýslum með vöruna orku. Nú er það þannig að Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur gert okkur að bjóða út eða leita leiða til að fara nýjar leiðir við endurnýjun nýtingarsamninga á orku. Hún byggir það m.a. á þjónustutilskipun sem við erum aðilar að. Þar af leiðandi er freistandi að álykta að enn eitt skrefið í átt að því að taka upp fleiri reglur og fleiri gerðir frá Evrópusambandinu geri að verkum að við værum enn meira að afsala okkur einhvers konar yfirráðum eða völdum til yfirþjóðlegrar stofnunar, hvort sem það er ESA eða einhver önnur.