ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum enn á ný fyrir fyrirspurnina. Hvort samkeppnisforskotið sem tapast verði bætt upp með öðrum hætti er erfitt að segja til um. Ég er ekki skyggn eða berdreyminn, svo að ég geti sagt fyrir um það nákvæmlega.
En margir gætu haldið því fram að þetta væri ekkert mál af því að á þessum tíma værum við farin að fá svo mikið fyrir raforkuna, þaðan kæmu peningarnir. En með innleiðingu þessara gerða verður væntanlega búið að skipta upp eignarhaldi á Landsvirkjun og hún verður að einhverju leyti eða kannski að miklu leyti komin í hendur einkaaðila. Þá mun sá arður renna í þeirra skaut en ekki þjóðarinnar. Þá getum við spurt okkur: Til hvers er unnið ef við erum að fara að tapa störfum, framselja ríkisvaldið? Hvað ætlum við þá að gera í okkar orkumálum?