ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir ágæt svör. Talandi um þróun vil ég bæta við það sem ég sagði áðan. Það er ekki langt síðan við Íslendingar þekktum varla grænmeti. Það eru ekki margir áratugir síðan. Og hvað færði okkur þau gæði annað en einmitt fallorkan, ylurinn og ljósið sem henni fylgir? Þetta gerðist bara eftir miðja síðustu öld. Við getum farið að rækta grænmeti og neyta þess og við þurfum ekki að tína bara upp fífla og sóleyjar heldur getum við keypt okkur falleg afskorin blóm. Þetta er allt rafmagninu að þakka og er ekkert svo langt síðan.
Þessi öra þróun á sér stað mjög hratt og ég vil spyrja þingmanninn í seinna andsvari hvort svæðaskipting Evrópu hafi eitthvað með þessa þróun að gera.